Sýn í starfi
Frá unga aldri hef ég haft djúpan áhuga á málefnum barna og ungmenna og velferð þeirra. Í námi og starfi hefur hugurinn því jafnan leitað í þá átt. Sem lögfræðingur starfaði ég um árabil við fjölskyldumál. Í framhaldi, við nám í lýðheilsu, beindist áhugi minn enn skýrar að börnum og ungmennum og vann ég þar meðal annars að verkefnum sem sneru að meðgönguskimun og þeim siðferðilegu álitaefnum sem henni fylgja. Í störfum mínum á vettvangi sveitarstjórnar voru málefni barna og ungmenna á ný í forgrunni, einkum menntamál og forvarnir en einnig málefni fatlaðs fólks. Að leiðarljósi hef ég haft þá hugsjón að öll börn og ungmenni eigi að fá raunveruleg tækifæri til að blómstra – í öllum sínum margbreytileika og óháð félagslegum aðstæðum.
Meistara- og doktorsnám í uppeldis- og menntunarfræðum var því hluti af því markmiði að beina starfskröftum mínum alfarið inn á fræðasvið þar sem fengist er við málefni barna og ungs fólks.
Kennsla mín og rannsóknir hafa beinst að fjölbreyttum þáttum í nærumhverfi barna sem tengjast velferð þeirra og farsæld til framtíðar. Heimilið, skólasamfélagið og félagslegt umhverfi þeirra leggja þar grunninn, ásamt þeim velferðarkerfum sem umlykja börn og fjölskyldur þeirra. Í heimi síbreytilegra áskorana er jafnframt mikilvægt að beina sjónum að tengslum ungs fólks við samfélagið í víðara samhengi og hæfni þeirra til að taka þátt í mótun þess. Ég hef því lagt áherslu á borgaravitund og virka þátttöku ungmenna og hvaða þýðingu slík þátttaka hefur bæði fyrir þau sjálf og samfélagið í heild.
- Dósent
- Menntavísindasvið
- Deild menntunar og margbreytileika
- Faglegur stjórnandi Íslensku æskulýðsrannsóknarinnar
- Aðalrannsakandi HBSC á Íslandi
- Aðalrannsakandi ESPAD á Íslandi