Um mig
Ég nýt þeirra forréttinda að starfa hjá Háskóla Íslands þar sem sífelld þekkingarleit og miðlun á vinnustaðnum er til þess fallin að opna huga manns og víkka sjónarhorn á ýmis viðfangsefni.
Í kennslu hef ég komið að námskeiðum sem fjalla um borgaravitund og virka þátttöku barna og ungs fólks, bæði í stjórnmálastarfi og félagslegu starfi. Jafnframt hef ég leitt námskeið um áhættuhegðun og seiglu ungmenna þar sem fjallað er um áhættuþætti og verndandi þætti í lífi þeirra sem geta haft þýðingu fyrir farsæld þeirra til framtíðar. Áherslan er á mikilvægi þess að efla verndandi þætti og grípa inn í líf barna sem búa við áskoranir í lífi sínu með það fyrir augum að auka líkur á að þeim farnist vel þrátt fyrir mótdrægar aðstæður. Sömuleiðis að setja inn snemmbær úrræði um leið og merki sjást um vanlíðan, áhættuhegðun eða aðrar hindranir og styðja við tækifæri barna og ungmenna til að þroskast og nýta krafta sína til fulls. Með frábæru samstarfsfólki hef ég jafnframt komið að námskeiðum um mannréttindi, sjálfboðaliðastarf og farsæld barna.
Rannsóknir mínar hafa snúið að framangreindum sviðum en sömuleiðis hef ég átt farsælt samstarf við vettvang á þessum sviðum. Þannig hef ég til að mynda unnið með sveitarfélögum, ráðuneytum, opinberum stofnunum eins og Miðstöð menntunar og skólaþjónustu, Ríkislögreglustjóra og Embætti landlæknis en jafnframt félagasamtökum eins og Rauða krossinum og UNICEF.
Menntun Háskóla Ísland
Háskóli Íslands, Menntavísindasvið
Kennslufræði háskóla, viðbótardiplóma
Háskóli Íslands, Menntavísindasvið
Doktorspróf í uppeldis- og menntunarfræði
Sérsvið borgaraleg þátttaka ungs fólks
Háskóli Íslands, Félags- og mannvísindadeild
MA í uppeldis- og menntunarfræði
University of North Carolina, Chapel Hill
School of Public Health
Háskóli Íslands, Lagadeild
Embættispróf í lögfræði
Menntaskólinn í Reykjavík
Stúdentspróf
Störf
Háskóli Íslands
Dósent við Menntavísindasvið Háskóla Íslands (2024–)
Lektor við Menntavísindasvið Háskóla Íslands (2018–2024)
Sérsvið: Borgaravitund og þátttaka ungs fólks /
Áhættuhegðun og velferð barna og ungs fólks
Háskóli Íslands
Aðjúnkt I við Menntavísindasvið Háskóla Íslands
Sérsvið: Borgaravitund og þátttaka ungs fólks /
Áhættuhegðun og velferð ungs fólks
Háskóli Íslands
Stundakennari við Menntavísindasvið Háskóla Íslands
Catholic University of America
Gestafræðimaður
Sálfræðideild
Háskóli Íslands
Starfsmaður
Rannsóknarsetrið Lífshættir barna og ungmenna
Garðabær
Bæjarfulltrúi / Varabæjarfulltrúi í Bæjarstjórn Garðabæjar
2011 – 2013 Kjörstjórn
2010 – 2013 Bæjarráð
2010 – 2013 Skólanefnd
2008 – 2010 Nefnd um lífsleiknikennslu í grunnskólum, formaður
2007 – 2008 Nefnd um samþættingu skóla- og tómstundastarfs
2006 – 2010 Skipulagsnefnd
2006 – 2007 Stýrihópur um gerð forvarnastefnu, formaður
2005 – 2006 Vinnuhópur um endurskoðun skólastefnu
2002 – 2006 Bygginganefnd
2002 – 2010 Forvarnanefnd, formaður
Háskóli Íslands
Verkefnisstjóri framhaldsnáms
Hjúkrunarfræðideild
Augnlæknastöðin Sjónlag
Framkvæmdastjóri
Búsett í Bandaríkjunum
Borgarfógetaembættið í Reykjavík
Lögfræðingur, Uppboðsdeild
Sýslumaðurinn í Reykjavík
Lögfræðingur, Sifjadeild
Störf á vegum Háskóla Íslands
Háskóli Íslands
Háskólaráð
Mennta- og barnamálaráðuneytið
Stýrihópur foreldrafræðsluverkefnisins Föruneyti barna
Mennta- og barnamálaráðuneytið og Menntavísindasvið Háskóla Íslands
Verkefnastjórn um fræðslu og ráðgjöf við foreldra um uppeldi barna í samstarfi við leik- og grunnskóla
Mennta- og barnamálaráðuneytið
Stýrihópur foreldrafræðsluverkefnisins Föruneyti barna
Stjórn Farsældarnetsins
https://farsaeldarnetid.hi.is/is/stjorn/
Mennta- og barnamálaráðuneytið/Menntavísindasvið
Faglegur stjórnandi Íslensku æskulýðsrannsóknarinnar
Mennta- og barnamálaráðuneytið
Samráðshópur Mennta- og barnamálaráðuneytis vegna undirbúnings frumvarps til nýrra laga um skólaþjónustu.
Child Participation for Europe (CP4E)
Sérfræðihópur í tengslum við þátttökuúttekt
Menntavísindasvið Háskóla Íslands
Formaður námsbrautar í uppeldis- og menntunarfræði
Mennta- og barnamálaráðuneytið
Ráðgjafahópur um þjóðarátak í þágu forvarnastarfs fyrir börn og ungmenni (varamaður)
Háskóli Íslands
Kennslumálanefnd Háskóla Íslands
Háskóli Íslands
Formaður Kennslunefndar Menntavísindasviðs Háskóla Íslands
Menntavísindasvið Háskóla Íslands
Námsnefnd uppeldis- og menntunarfræði, Deild menntunar og margbreytileika (formaður frá 2020 til 2022)
Tímarit um uppeldi og menntun
Ritstjórn sérrits til heiðurs Sigrúnu Aðalbjarnardóttur prófessor emerita (desemberútgáfa)
Umboðsmaður barna
Samráðshópur umboðsmanns barna fyrir Barnaþing frá 2019
Félags- og sjálfboðaliðastörf
Delta – Kappa – Gamma.
Félag kvenna í fræðslustörfum. Varaformaður Gamma-deild.
Rauða krossinn, sjálfboðaliði, Frú Ragnheiður.
Fatimusjóður, lögfræðilegur ráðgjafi og síðar formaður stjórnar.
Association of Moral Education.
Foreldraráð Sjálandsskóla.
Formaður Foreldrafélags Flataskóla.